Spurt og svarað
Það sem fólk vill vita en þorir ekki alltaf að spyrja um.
Hvar nákvæmlega eruð þið?
Í Spönginni í Grafarvogi, beint á milli Borgahverfis og Rimahverfis. Þetta er einn af þessum stöðum sem fólk fer framhjá daglega án þess að taka eftir honum. Þegar maður veit af honum getur maður ekki hætt að taka eftir honum.
Er erfitt að finna ykkur?
Já, furðulega. Margir búa í nágrenninu árum saman án þess að finna okkur, og sumir finna okkur aldrei. Ráð okkar: farðu hægt, taktu eftir, og ef þú ert í vafa, spurðu einhvern sem hefur komið.
Ég fór of langt og endaði í Rimahverfi. Hvað nú?
Það gerist oft. Sumir gestir segja að það hafi verið hápunktur ferðarinnar. Við dæmum engan, og vísum þér glöð sömu leið til baka.
Af hverju heitið þið Spöngin Inn?
Út af staðsetningunni, auðvitað. Erlendir gestir þekkja okkur sem Perineum Inn. Íslendingar glotta yfirleitt þegar þeir heyra nafnið. Við gerum ráð fyrir að það sé út af fótboltanum.
Er sýndur fótbolti?
Allir leikir á Stönginni, barnum okkar. Uppáhaldsaugnablik starfsfólksins er þegar boltinn fer í stöngina og inn. Það segir sig eiginlega sjálft.
Er líkamsrækt á hótelinu?
Nei, en í hverju herbergi er plastað spjald með tíu lúmskum æfingum sem hægt er að gera hvar sem er. Kreista, halda í fimm sekúndur, sleppa. Fastagestirnir gera þær í biðröðum, á fundum og á rauðu ljósi. Þú yrðir hissa á því hvað er í gangi í kringum þig.
Má koma með gæludýr?
Vel uppaldir hundar eru hjartanlega velkomnir. Þeir finna okkur yfirleitt án nokkurra leiðbeininga.
Hvenær er innritun?
Innritun frá kl. 15:00, útritun fyrir kl. 11:00. Snemmbúin innganga er möguleg ef þú lætur vita fyrir fram.
Má sóla sig á þakinu?
Já. Sloppar eru í boði og skylda í lyftunni. Hvað þú berð fyrir miðnætursólinni, og hve lengi, er á milli þín og heilsuþjálfarans þíns.
Er það satt að enginn hafi nokkurn tímann gist hér?
Við viljum frekar segja að gestirnir okkar séu einstaklega nærgætnir.